Glymur í bárujárni, barist er um nótt blikar á tár og kannski vantar suma þrótt Húsið það lekur, myndast alltaf mygla þar minningadrekar leynast næstum allsstaðar
Í stríðum straumum fer nálægt mér nýfallinn regndropaher
Svartur á leikinn, svona verður þetta hér svífur nú bleikur máni yfir þér og mér Enda þótt næði flesta daga kalt um kinn komum og ræðum þetta saman vinur minn
Í stríðum straumum fer nálægt mér nýfallinn regndropaher